Forsíða arrow ÍGF arrow Fyrirtækið
ÍGF
Fyrirtækið
Starfsfólk
Stjórn
Skipurit
Gildin
Vörur
Þjónusta
Atvinnuumsókn
Styrkbeiðni
Græna tunnan
Jólatréssöfnun
Fyrirtækið   Prenta  Senda 

Íslenska Gámafélagið leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum uppá heildarlausn á sviði flestrar umhverfisþjónustu. Það getur verið allt frá því að bjóða uppá ráðgjöf á sviði flokkunar og endurvinnslu, losun úrgángs, götusópun, snjómokstur, sláttur ásamt því að reka öflugustu véla- og tækjaleigu landsins.

Íslenska gámafélagið ehf., var stofnað 1999. Tilgangurinn með stofnun fyrirtækisins var að auka samkeppni á því sviði atvinnulífsins sem snýr að sorphirðu. Hjá Íslenska Gámafélaginu starfa 200 manns víða um land.

Fyrirtækið hefur í dag yfir að ráða u.þ.b 2.000 járngámum og um 10.000 plastkara sem eru leigð fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum.

Þjónustusviðið spannar alla þætti almennrar sorphirðu, frá innsöfnun á heimilissorpi til söfnunar og flutnings á spilliefnum auk þess býður fyrirtækið upp á ráðgjöf á sviði endurvinnslu og flokkunarmála, vinnuvélaflutninga, leigu á vinnuskúrum, þurrsalernum, hálkueyðingu ásamt götusópun.
Íslenska Gámafélagði er með starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu auk eftirtalinna svæða:

  • Suðurnes
  • Vestmannaeyjar
  • Árborg
  • Flóahreppur
  • Skeið- og Gnúpverjahreppur
  • Skaftárhreppur
  • Reyðarfjörður
  • Fljótsdalshérað
  • Fljótsdalshreppur
  • Akureyri
  • Fjallabyggð
  • Borgarnes
  • Snæfellsnes 

Íslenska Gámafélagið sér um að þjónusta flestar móttökustöðvar Sorpu , ásamt því að þjónusta rúmlega 3000 önnur fyrirtæki.

Á einstaklingsmarkaði þjónustar Íslenska Gámafélagið yfir 100.000 heimili á Íslandi og erum við eitt stærsta þjónustufyrirtækið á sviði sorphirðu fyrir einstaklinga á landinu í dag.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Gufunesi í sama húsnæði og því svæði sem Áburðarverksmiðjan var. Opið er á skrifstofu fyrirtækisins frá 08.00 til 17.00 alla virka daga. Fyrirtækið er með þjónustuvakt alla daga vikunnar til kl 21.00 á kvöldin, þjónustuvaktina er hægt að ná í í síma 577 57 57 eða 840 5757.

Frekari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu eða á heimasíðu okkar.
gamur.is. gamur@gamur.is.


Fyrirtækin Þjónusta Vörur Flokkarinn.is
| Gufunesvegi | 112 Reykjavík | sími: 5775757 | fax: 5775758 | gamur@gamur.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun